28.11.1959
Efri deild: 4. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 140 í C-deild Alþingistíðinda. (2221)
7. mál, gjaldaviðauki 1960
Sigurvin Einarsson:
Herra forseti. Ég vil taka undir þá ósk, sem hér hefur verið flutt til hæstv. forseta, að málinu verði frestað nú, og ég ætla, að hann muni sjá, að það er engin ósanngirni í því fólgin. Ég er búinn að vinna í n. í 3 ár með þessum hv. þm., og sú reynsla bendir til þess, að hann muni taka þessu máli vel og með fullri sanngirni, enda er nú skammt til helgidags og óvenjulegt með öllu að halda slíkum fundi áfram á laugardagskvöldi svo skömmu eftir þingsetningu. Ég bið frekar með að ræða um þetta mál, þar til ég fæ svar hæstv. forseta.