26.11.1959
Efri deild: 3. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 174 í C-deild Alþingistíðinda. (2239)

8. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Þetta frv. felur í sér framlengingu á gildi III. kafla l. frá 1948 um dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna og er þess efnis, að framlengd verði fyrir næsta ár þau ákvæði, sem gilt hafa undanfarið um söluskatt. Þetta frv. er alveg samhljóða l. um þetta efni, sem samþ. voru á Alþ. fyrir síðustu áramót og fólu í sér framlengingu skattsins fyrir yfirstandandi ár.

Ég legg til, að frv. verði vísað til 2. umr. og fjhn.