11.05.1960
Sameinað þing: 48. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 161 í D-deild Alþingistíðinda. (2726)
144. mál, flugsamgöngur
Magnús Jónsson:
Herra forseti. Ég skal ekki lengja umr. um þetta mál. Það er, eins og sagt hefur verið, mjög athyglisvert og getur haft mjög mikla þýðingu fyrir flugsamgöngur á Íslandi. Það er hins vegar rétt, sem hæstv. flugmrh. benti hér á áðan, að af þessum flugvélum er ekki komin fullkomin reynsla sem skyldi til þess að ákveða nú kaup á þeim.
En það er eitt atriði í þessu sambandi, sem ég vildi vekja athygli á og gæti komið til athugunar í þeirri n., sem málið fær til meðferðar, í sambandi við hugsanlega aðstöðu til þess að fá flugvél af þessari gerð til nægilega langrar dvalar hérlendis. Það er alveg ljóst, að það er mjög hæpið, að nægilegt sé að fá slíka flugvél til að vera hér í nokkra daga. Það þarf að reyna hana við margvísleg veðurskilyrði og því líklegt, að það væri jafnvel nauðsynlegt, að hún væri hér nokkrar vikur, og vel kann að vera, að það væri auðið að fá beinlínis vél til þeirrar dvalar hér. En það kynni þó að vera hugsanleg einnig önnur leið í því efni, ef það reynist ekki fært að fá þessa vél til að vera hér nægilega lengi. Þannig er mál með vexti, að þessar flugvélar hafa verið keyptar sérstaklega af bandaríska flughernum og hafa verið þar töluvert í notkun. En mér fyndist það ekki fráleitt að leita eftir því við bandaríska flugherinn, sem hefur hér jafnan flugvélar og flugsveitir, að slík flugvél yrði staðsett hér um einhvern tíma. Það gæti þá orðið um mun lengri tíma en auðið væri að fá slíka vél til reynslu. Mér sýnist, að þetta a.m.k. sé vel þess virði að athuga það, hvort ekki væri hægt að semja um það við bandaríska varnarliðið hér, að ein flugvél af slíkri gerð yrði staðsett hér, a.m.k. um nokkurra mánaða skeið, til þess að tryggt væri, að það væri hægt að reyna flugvélina við allar aðstæður hér, sem þarf að athuga, þegar um það er að ræða að velja hæfar flugvélar til nota hér.
Að öðru leyti ætla ég ekki að ræða málið. Þess gerist ekki þörf. Ég veit, að allir eru sammála um nauðsyn þess að tryggja það með bættum flugvélakosti, að víða sé hægt að lenda á landinu, og flugvallamálin eru ákaflega stórt fjárhagslegt atriði fyrir okkar þjóð og vitanlega algerlega óhugsandi, að í náinni framtíð verði hægt að gera flugvelli á öllum þeim stöðum, sem nauðsynlegt er að hægt sé að fljúga til, flugvelli af þeirri gerð, sem óumflýjanlegir eru til þess að fullnægja þörfum þeirra flugvéla, sem helzt eru í notkun nú.