01.06.1960
Sameinað þing: 57. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 174 í D-deild Alþingistíðinda. (2751)
126. mál, rækjumið
Eysteinn Jónsson:
Eins og hv. frsm. n. tók fram, er till. nokkuð breytt. Hann minntist á, að það væri stungið upp á að álykta að leita að rækjumiðum fyrir Austurlandi og Norðurlandi og á öðrum hafsvæðum umhverfis landið. Að sjálfsögðu höfum við, sem flytjum till., síður en svo á móti því, að einnig sé leitað að rækjumiðum annars staðar en eystra, erum áreiðanlega allir miklir stuðningsmenn þess. En aðalatriðið í okkar augum var, að leit fyrir Austurlandi færi fram á komandi sumri. En það er mesta efnisbreyt. á till. frá því, sem við fluttum hana, að í till. fjvn. er ekki ályktað, að þessi leit fari fram í sumar. Og mér finnst dálítið óljóst af því, sem hv. frsm. sagði, að afleiðing till. yrði sú, að þetta yrði gert einmitt nú í sumar. Ég vil leggja mjög mikla áherzlu á þetta atriði.
Ég þykist vita, að það þýði ekkert að vera að reyna að berjast á móti þeirri breyt., sem hv. fjvn. hefur lagt til, og þá helzt þar sem við erum auðvitað fylgjandi því, að líka sé leitað annars staðar. En það er þetta, að það sé gert á komandi sumri, það er höfuðatriðið, og þykjumst við þá mega treysta því, að Austfirðir verði framarlega í röðinni og ef lagt verður út í verulegan leiðangur, þá verði leitað þar í sumar og þá annars staðar að einhverju leyti líka.
Hv. frsm. gat þess, að það mundi kosta 300 þús. kr. að gera út leiðangur. Mér var ekki ljóst, hvað sá leiðangur gæti farið víða, hvort það væri leiðangur fyrir Austurlandi einu eða Austurlandi og annars staðar. Ég verð að segja, að mér vex ekki sú fjárhæð neitt í augum þó að það kosti nokkur hundruð þús. kr. að gera slíka leit, og ég mundi vilja líta þannig á alveg hiklaust, að samþykkt þessarar till. væri um leið að sjálfsögðu, eins og venja er til, fjárveitingarheimild frá Alþ. til þess að verja því fé til leitarinnar, sem þyrfti á að halda, og þá allt að einu, þó að ekki yrði hægt að taka þá fjárhæð af því fé, sem ætlað er á fjárlögum til fiskileitar, því að því aðeins er þessari ályktun ætlað að ganga í gegnum tvær umræður, að það er gert ráð fyrir, að í henni felist fjárveiting. Og ég efast ekkert um, að hæstv. ríkisstj. hefur nóg fé til þess að greiða þessa leit. Það sjáum við m.a. á þeim upplýsingum, sem einn hæstv. ráðh. gaf alveg nýlega, sem sé að fé flæðir svo ört inn í ríkissjóðinn af þeim álögum, sem samþykktar hafa verið, að yfirdráttur ríkissjóðs, sem hefur verið allmikill venjulega um þetta leyti í seðlabankanum, er nú næstum enginn. Það er augljóst, að þessar álögur færa stórfé inn í ríkissjóðinn, eins og við var að búast, og þess vegna er áreiðanlega ekki um fjárskort að ræða. Ég mundi því vilja leggja áherzlu á, að leitin yrði framkvæmd í sumar, þó að orðalagi till, verði breytt eins og hv. meiri hl. n. leggur til.