01.06.1960
Sameinað þing: 57. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 184 í D-deild Alþingistíðinda. (2776)

177. mál, skaðabætur vegna endurbóta á vegakerfi landsins

Halldór E. Sigurðsson:

Herra forseti. Eins og fram er tekið í grg. fyrir till. þessari á þskj. 337, er tilgangur hennar að hraða þessu máli eins og mest mætti vera. Nú hefur það fengizt, að fyrir liggja ótvíræðar yfirlýsingar um það, að að framkvæmd málsins verður unnið eins hratt og mögulegt er. Af þeim ástæðum liggur það fyrir, sem ætlazt var til, og ég vil því þakka þá staðfestingu. sem hefur fengizt, og treysti því, að málinu verði hraðað eins og nokkur föng eru til.