15.03.1960
Neðri deild: 48. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1346 í B-deild Alþingistíðinda. (294)

88. mál, söluskattur

Forseti (JóhH) :

Ég hafði haldið, að við værum komnir á leiðarenda með þessar umræður, en þá kvöddu sér hljóðs þrír hv. þm. Nú er það ekki svo, að þm. sé alls varnað enn að láta til sín taka í þessu máli eða láta til sín heyra, þar sem við erum hér með 1. umr. Einn af þessum þm. hefur hins vegar talað einu sinni aðeins, og ég ætla að gefa honum fyrst orðið. Ég vænti þess, að hv. þm. misvirði það ekki, þó að forseti mælist til þess, að hann reyni að stytta mál sitt.