04.05.1960
Sameinað þing: 46. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 446 í D-deild Alþingistíðinda. (3157)
139. mál, niðurgreiðsla á vöruverði
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Ég get því miður ekki á þessu stigi svarað þeirri fsp. hv. þm., á hvaða vörutegundum muni verða lækkuð niðurgreiðsla vegna niðurgreiðslnanna, sem teknar voru upp á innfluttum áburði og fóðurbæti, því að um það hefur ekki verið tekin ákvörðun enn. Verði sú ákvörðun tekin, meðan þing situr, er sjálfsagt að skýra hv. þingheimi frá því. Ég get hins vegar getið þess til viðbótar í framhaldi af þessari fsp. hv. þm., að niðurgreiðslan á verði innflutts fóðurbætis og tilbúins áburðar veldur 0.5 stiga lækkun á vísitölunni, miðað við óbreytta álagningu í krónum. Ef niðurgreiðsla á landbúnaðarvörum til neytenda er lækkuð um sömu stigatölu, þýðir það aðeins 6 millj. kr. viðbótarkostnað á ári. Ástæðan er sú, að niðurgreiðslukostnaður á stig er dýrari fyrir fóður og tilbúinn áburð en fyrir fullunnu vöruna, og á þetta einkum við um áburðinn.