11.05.1960
Sameinað þing: 48. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 477 í D-deild Alþingistíðinda. (3227)
912. mál, fræðsla í þjóðfélagsfræðum
Fyrirspyrjandi (Ólafur Björnsson):
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. menntmrh. fyrir þær greinargóðu upplýsingar, sem hann hefur gefið, og ég tel, að í þeim felist fullnægjandi svar við því, sem um hefur verið spurt. Um efnishlið þessa máls, sem hér liggur fyrir, sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða, þó að ástæða gæti verið til þess á einhverjum öðrum vettvangi.