03.02.1960
Sameinað þing: 11. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 498 í D-deild Alþingistíðinda. (3271)

915. mál, afkoma útflutningssjóðs

Fyrirspyrjandi (Eysteinn Jónsson):

Ég vil aðeins geta þess til skýringar, að þar sem ég talaði um, að þessar fsp. væru máske óþarfar, þá átti ég við, að það kynni að vera, að í grg. frumvarpanna frá hæstv. ríkisstj. væri allt, sem þyrfti, til þess að sjá svörin við þeim. En ef það sést ekki allt í þeim greinargerðum, vil ég eindregið óska eftir því, að hæstv. ráðherra svari þeim, eins og hann hefur gert ráð fyrir.