21.03.1960
Sameinað þing: 27. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1647 í B-deild Alþingistíðinda. (409)

42. mál, fjárlög 1960

Alfreð Gíslason bæjarfógeti:

Herra forseti. Þáltill. þeirri, sem hv. 3. þm. Reykn. (MÁM) og ég fluttum hér í Sþ., var á sínum tíma vísað til fjvn. Þar er till. enn þá í athugun, og í trausti þess, að fjvn. mæli með samþykkt þessarar till. og þingið síðan samþykki hana og þar með að ríkisstj. veiti fjárveitingu til þessara jarðborana, tel ég, að þessi brtt. sé algerlega óraunhæf, og segi ég því nei.