08.04.1960
Neðri deild: 66. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2010 í B-deild Alþingistíðinda. (608)

111. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Eðvarð Sigurðsson:

Herra forseti. Í þessari grein felst, að tryggður verður persónufrádráttur, að þurftarlaun verða undanþegin tekjuskatti. Þessu ákvæði er ég eindregið fylgjandi. Að öðru leyti felur greinin í sér óhóflegar eftirgjafir á tekjuskatti hátekjumanna, sem ég er með öllu andvígur. Þar sem þessi tvö óskyldu ákvæði eru fastbundin hvort öðru í greininni og borin undir atkv. í einu lagi, er mér fyrirmunað að fylgja fram skoðun minni á ákvæðum greinarinnar með atkvgr. með eða móti, og því greiði ég ekki atkv.