19.05.1960
Neðri deild: 84. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2500 í B-deild Alþingistíðinda. (840)

131. mál, innflutnings- og gjaldeyrismál o.fl.

Þórarinn Þórarinsson:

Herra forseti. Það er aðeins ein fsp., sem ég vildi beina til hæstv. viðskmrh. Hún er á þá leið, að ef þetta frv. verður samþ. nú og afgreitt frá Alþ., sennilega á morgun, hvort þá sé meiningin að staðfesta það strax og láta það koma til framkvæmda, það sé lagt svo mikið kapp á að hraða þessu hér vegna þess, að það sé ætlunin að láta það t.d. koma til framkvæmda fyrir helgi.