19.05.1960
Neðri deild: 84. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2500 í B-deild Alþingistíðinda. (841)

131. mál, innflutnings- og gjaldeyrismál o.fl.

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. í 14. gr. þessa frv. segir svo, með leyfi forseta:

„Lög þessi öðlast gildi þann dag, sem reglugerð sú, sem um getur í 1. gr., er gefin út.“ Það er tilætlunin, þegar lög þessi hafa verið samþykkt, að gefa út þessa reglugerð 1. júní, þannig að hin nýja skipan, sem tekin verður upp samkv. l., þegar þau hafa verið samþ. á hinu háa Alþ., mun koma til framkvæmda 1. júní.