28.05.1960
Efri deild: 86. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2610 í B-deild Alþingistíðinda. (990)
169. mál, Búnaðarbanki Íslands
Frsm. minni hl. (Karl Kristjánsson):
Herra forseti. Aðeins örfá orð. — Ég minnist þess, að Sjálfstfl. og ýmsir menn í honum hneyksluðust mjög á því, sem hv. 6. þm. Norðurl. e. (MJ) vitnar nú í sem fordæmi. Og ég vildi nú segja það, að sú hneykslun hefur ekki staðið ákaflega djúpt, úr því að þeir vilja nú ekki upphefja þá reglu með því að gefa annað fordæmi. Ég hef aðeins með þessari till. boðið þeim upp á tækifæri til þess, sem kostar ekkert, en getur sýnt hugarfar og það, hvort hneykslanirnar hafa verið tilbúnar eða ekki.