21.03.1961
Efri deild: 78. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1048 í B-deild Alþingistíðinda. (1021)

209. mál, meðferð opinberra mála

Forseti (SÓÓ):

Ég vil geta þess í sambandi við þetta mál, sem er hér til 1. umr. nú og er komið frá Nd., að hæstv. dómsmrh. er ekki í bænum í dag og getur þess vegna ekki flutt sína framsöguræðu við þessa umr. En hann bað mig um að taka það samt fyrir og koma því til n. og sagðist vona, að það sakaði ekki, þó að hann flytji þá ekki sína ræðu með þessu máli fyrr en við 2. umr.