23.03.1961
Neðri deild: 80. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1133 í B-deild Alþingistíðinda. (1082)

124. mál, ríkisábyrgðir

Frsm. meiri hl. (Birgir Kjaran):

Herra forseti. Fjhn. hefur haft til meðferðar brtt. frá Gísla Jónssyni á þskj. 580 og skoðað hana, og er meiri hl. nefndarinnar meðmæltur, að hún verði samþ. Skúli Guðmundsson gerði í nefndinni grein fyrir skoðunum sínum, sem hann áður hefur lýst hér í deildinni, að hann væri andvígur þessu áhættugjaldi, og greiddi því ekki atkv., þegar till. var borin upp. Meiri hl. mælir sem sagt með, að till, verði samþ.