24.03.1961
Neðri deild: 83. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1286 í B-deild Alþingistíðinda. (1192)
213. mál, minnispeningur Jóns Sigurðssonar
Frsm. (Birgir Finnsson):
Herra forseti. Fjhn. mælir með þessu frv. óbreyttu. — Ég vil aðeins leyfa mér að vekja athygli á því, að í grg. frv. á bls. 2, 1. línu í 3. mgr., hefur slæðst inn prentvilla, sem gæti valdið misskilningi, en gerir það þó í raun og veru ekki, ef lesið er með athygli. Þar stendur: „Ýmsar frekari endurbætur hafa verið gerðar á Rafnseyri“ o.s.frv. Þarna mun eiga að standa: Ýmsar frekari endurbætur þarf að gera á Rafnseyri“, vegna þess að það, sem á eftir fer, er upptalning á því, sem ógert er á Rafnseyri.
Eins og rakið er í grg. frv., er að því stefnt að byggja þannig upp á Rafnseyri, fæðingarstað Jóns Sigurðssonar, að þangað verði staðarlegt heim að líta, myndarlegt prestssetur og skóli fyrir sveitina og aðstæður til móttöku gesta. Hagnaði af sölu gullpeningsins á að verja í þessu augnamiði, en í þingmannstíð sinni og jafnan síðan hefur núv. forseti, herra Ásgeir Ásgeirsson, verið aðalhvatamaður þess, að byggt yrði upp á fæðingarstað Jóns Sigurðssonar, svo sem hæfir minningu hans. — Ég legg til fyrir hönd fjhn., að frv. verði samþ.