12.12.1960
Efri deild: 34. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1335 í B-deild Alþingistíðinda. (1306)

115. mál, réttindi og skyldur hjóna

Karl Kristjánsson:

Herra forseti. Ég vil sem flm. þessa frv. þakka hv. landbn. fyrir jákvæða afgreiðslu og frsm. hennar fyrir hans grg. Ég vil lýsa því yfir, að ég hef ekkert að athuga við þá till. um viðbót við 1. gr., sem hv. landbn. flytur. Ég tel þá till. eðlilega og mun greiða henni atkv.