10.10.1960
Sameinað þing: 0. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í B-deild Alþingistíðinda. (15)

Landhelgismálið

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti, Ég skal ekki tefja þessar umr. Ég vil aðeins taka fram, að ég lít á þessa yfirlýsingu hæstv. forsrh. sem alveg glögga um það, að haft verði samráð við Alþ., áður en nokkrar ákvarðanir eru teknar í þessum samningum.