27.03.1961
Neðri deild: 85. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1421 í B-deild Alþingistíðinda. (1532)

173. mál, sveitarstjórnarlög

Frsm. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Hv. Ed. hefur breytt nokkuð frv. og hefur borið fram í þeirri d. breytingar á þskj. 667, sem samþ. voru þar. Af þeim ástæðum er málið sent aftur til þessarar hv. deildar.

Það hefur ekki gefizt tími til þess að ræða málið í nefndinni. En ég hef leitað álits allra nm., að undanteknum einum, þ.e. fjögurra nm. af fimm, og eru þeir allir samþykkir því, að málið verði afgreitt svo sem það hefur komið frá Ed., og vænti ég, að það verði afgreitt þannig héðan frá þessari deild.