21.11.1960
Sameinað þing: 17. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1742 í B-deild Alþingistíðinda. (1667)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur yfirfarið gögn þau, sem fyrir lágu um fjarveru Birgis Finnssonar, og kjörbréf útgefið til handa Hirti Hjálmarssyni skólastjóra á Flateyri, og samþykkti að mæla með samþykkt kjörbréfsins og að kosningin yrði tekin gild.