20.03.1961
Neðri deild: 78. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1750 í B-deild Alþingistíðinda. (1694)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (BGr):

Borizt hefur eftirfarandi bréf: „Reykjavík, 20. marz 1961.

Vegna sérstakra anna heima fyrir mun ég ekki geta sinnt þingstörfum næstu vikur. Óska ég því þess, með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis, að varamaður minn, Jón Kjartansson forstjóri, taki sæti mitt á Alþingi.

Virðingarfyllst, Björn Pálsson:

Til forseta neðri deildar.“

Jón Kjartansson hefur áður undirritað eiðstaf, og býð ég hann velkominn til þingstarfa.