19.12.1960
Efri deild: 44. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1755 í B-deild Alþingistíðinda. (1714)

Starfsmenn þingsins

forseti (SÓÓ):

Þetta mun verða síðasti fundur þessarar hv. d. fyrir þinghlé. Ég vil því nota þetta tækifæri til að þakka hv. þdm. fyrir ágæta samvinnu við mig sem forseta, það sem af þessu þingi er. Ég þakka varaforsetum fyrir mér veitta aðstoð, skrifurum deildarinnar fyrir sérstaka skyldurækni í sínu starfi. Þá vil ég þakka skrifstofustjóra Alþingis og fulltrúum hans fyrir ágætt samstarf og öllu starfsliði Alþingis öðru vel unnin störf.

Ég óska ykkur, sem nú hverfið heim, sumir um langan veg, góðrar ferðar og ánægjulegrar heimkomu. Öllum ykkur og fjölskyldum ykkar óska ég gleðilegra jóla og farsæls nýs árs, og megum við svo heil hittast að þinghléi loknu.