20.12.1960
Neðri deild: 44. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1756 í B-deild Alþingistíðinda. (1718)

Starfsmenn þingsins

Einar Olgeirsson:

Ég vil leyfa mér fyrir hönd þdm. að þakka hæstv. forseta fyrir góðar óskir og góð orð í okkar garð. Ég vil, um leið og ég veit, að ég mæli þar fyrir munn allra hv. þdm., þakka honum fyrir röggsama og réttláta fundarstjórn og fyrir ágæta samvinnu við okkur. Ég vil óska honum og hans fjölskyldu gleðilegra jóla, góðs nýárs og vona, að við megum sjá hann aftur heilan á húfi, þegar við mætumst hér eftir nýárið. Ég vil svo biðja hv. þdm. að taka undir árnaðaróskir mínar til hæstv. forseta með því að rísa úr sætum. — [Dm. risu úr sætum.]