16.01.1961
Sameinað þing: 30. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1758 í B-deild Alþingistíðinda. (1726)

Starfsmenn þingsins

Forseti (FS):

Samkvæmt því, sem hæstv. forsrh. hefur tilkynnt, hefjast nú fundir Alþingis að nýju. Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. forsrh. góðar óskir hans í minn garð og annarra hv. þingmanna. Enn fremur vil ég nota þetta tækifæri til þess að bjóða hv. þm. velkomna til Alþingis að nýju og óska þeim og starfsfólki Alþingis velfarnaðar á nýja árinu og þakka síðastliðið ár.