28.03.1961
Neðri deild: 87. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1759 í B-deild Alþingistíðinda. (1731)

Þingsetning

forseti (BGr):

Þá er dagskrá þessa fundar tæmd. Þetta er síðasti fundur neðri deildar á þessu þingi. Aðalforseti deildarinnar hefur verið fjarverandi nokkra síðustu daga þingsins, en fyrir hans hönd, svo og varaforseta, vil ég þakka hv. deildarmönnum fyrir ágætt samstarf á þessu þingi. Ég vil óska hv. þm. gleðilegrar páskahátíðar, utanbæjarmönnum góðrar heimferðar og heimkomu og vona, að við hittumst hér öll heil til starfa á komandi hausti.