29.03.1961
Sameinað þing: 63. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1761 í B-deild Alþingistíðinda. (1736)

Starfslok deilda

Karl Kristjánsson:

Ég er þess fullviss, að ég hreyfi því, sem býr hv. þingmönnum sameiginlega í hug, þegar ég leyfi mér að flytja hæstv. forseta sameinaðs Alþingis þakkir fyrir þau hlýlegu orð og þær góðu óskir, sem hann mælti til okkar þingmanna. Ég leyfi mér einnig að þakka honum fyrir forsetastörfin, alúðlega rækt. Ég óska honum góðrar ferðar til síns heima og ánægjulegrar heimkomu. Ég árna honum og hans nánustu gleðilegrar páskahátíðar og góðs og gæfuríks komandi sumars. Ég bið ykkur, hv. þingmenn, að taka undir þessi orð mín með því að rísa úr sætum. —[Þingmenn risu úr sætum.]