24.10.1960
Sameinað þing: 6. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 79 í B-deild Alþingistíðinda. (177)

1. mál, fjárlög 1961

Forseti (FS):

Þessi útvarpsumræða fer þannig fram, að fyrst flytur hæstv. fjmrh. framsöguræðu, og er ræðutími hans ekki takmarkaður. Því næst verða fluttar hálfrar stundar ræður af hálfu annarra þingflokka en ráðherrans og í þessari röð. Alþb., ræðumaður Lúðvík Jósefsson, hv. 4. þm. Austf., Alþfl., ræðumaður Birgir Finnsson, hv. 5. þm. Vestf., Framsfl., ræðumaður Eysteinn Jónsson, hv. 1. þm. Austf. Að lokum talar fjmrh. aftur og hefur stundarfjórðung til andsvara.

Hefst nú umr. og tekur til máls hæstv. fjmrh., Gunnar Thoroddsen.