24.03.1961
Efri deild: 83. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 43 í C-deild Alþingistíðinda. (1787)
190. mál, síldarútvegsnefnd
Frsm. minni hl. (Sigurvin Einarsson):
Herra forseti. Þetta eru aðeins örfá orð í tilefni af ræðu hv. frsm. meiri hl. sjútvn, í dag. — Ég hafði bent á það í ræðu minni áður, að lögin um síldarútvegsnefnd væru búin að standa í 27 ár án nokkurra breytinga og þetta benti til þess, að lögin hefðu verið vel undirbúin og það hefði verið vel við þau unað. Hann gat þess aftur á móti, að ýmis ákvæði þessara laga væru orðin úrelt, og ég vil ekki neita, að svo kunni að vera um einhver ákvæði laganna. En þótt einhver þeirra séu úrelt, þá hefur það ekki komið að sök, að ég ætla. Ég hygg, að hann eigi við það, að það hefur verið óþarflega heft frelsi manna til sölu og útflutnings á vissum tegundum síldar og hafi þess vegna sífellt þurft að leita útflutningsleyfa til síldarútvegsnefndar vegna þessa. Það er rétt, að þetta mun hafa þurft að gera, en það hefur ekki komið að neinni sök, því að þessi leyfi munu yfirleitt hafa verið veitt. Hins vegar ætla ég alls ekki að neita því, að þetta sé rétt hjá honum, að slík ákvæði sum, sem nú eru í lögunum, mættu gjarnan hverfa.
Hann ræddi nokkuð um Landssamband ísl. útvegsmanna, að ástæðan til þess, að einn fulltrúi síldarútvegsmanna hefði verið kosinn beinni kosningu fram að þessu, væri sú, að Landssamband ísl. útvegsmanna hefði ekki verið til, þegar lögin voru sett. Þetta er að vísu rétt líka, en landssambandið er orðið æði gamalt núna, og aldrei hefur komið mér vitanlega nein ósk um það frá því að breyta þessu ákvæði. Ég held, að það samband hafi unað því vel, að síldarútvegsmenn sjálfir kysu beinni kosningu sinn fulltrúa. Hann vill ekki gera neinn mun á þessu og þeirri skipan, sem er lögð til í þessu frv. Ég geri nokkurn mun á því, því að það er ekkert, sem tryggir, að það verði útvegsmaður, þ.e.a.s. síldarútvegsmaður eða sjómaður, sem kemur sem fulltrúi landssambandsins, eftir að þetta frv. væri orðið að lögum. Það getur hreinlega orðið síldarsaltandi. Um þetta getur maður ekki vitað. En það er einmitt höfuðtilgangur þessa frv., að mér skilst, að síldarsaltendur verði allsráðandi í síldarútvegsnefnd, og ég býst ekki við, að hv. frsm. meiri hl. neiti þessu. Þetta er aðaltilgangurinn með frv., að fjölga upp í 7, þannig að félög síldarsaltenda fái þarna tvo auk þeirra saltenda, sem reynslan hefur sýnt, að jafnan eru kosnir í nefndina. Þeir eru tveir fyrir af þeim fulltrúum, sem Alþingi kýs, svo að þar er kominn meiri hl. Þeir geta auðveldlega orðið 4–5 eða kannske allir saltendur. En mjög ólíklegt er, að þeir verði nokkurn tíma í minni hluta, eftir að þessi skipan er komin á.
Ef þetta á að verða þannig, að síldarsaltendur hafi svona mikil áhrif í síldarútvegsnefnd, þá held ég, að önnur skipan væri miklu skynsamlegri, og hún er sú að leggja síldarútvegsnefnd niður, svo að félög síldarsaltenda hafi þarna öll ráð. Ég ætla ekki að neita því, að þetta getur komið til greina, en ég vil ekki sætta mig við það, að Alþingi sé að kjósa 3 menn af 7, minni hluta í nefnd, ef þetta er tilgangurinn og hlýtur að verða í framkvæmdinni, að síldarsaltendur ráði þarna yfirleitt öllu, sem þeir vilja ráða.
Ég hef aftur á móti lítið svo á, að útgerðarmenn og sjómenn, sem stunda síldveiðar, eigi að hafa hliðstæðan rétt til áhrifa í þessari nefnd eins og síldarsaltendur, því að það sjá allir, að enginn saltar síld, nema hún sé veidd. Og ég get ekki séð, að saltendurnir eigi að vera svona miklu rétthærri en hinir, sem vinna að veiðunum. En séu menn þessarar skoðunar, að síldarsaltendur eigi að hafa svona mikil ítök þarna, þá er réttara að mínum dómi að gefa þetta alveg frjálst, svo að félagsskapur þeirra hafi þarna öll ráð. Hins vegar er tillaga okkar minnihlutamanna sjávarútvegsnefndar langt frá því að vera neitt óvinsamleg í garð þessa máls, því að hin rökstudda dagskrá, sem við flytjum, fer aðeins fram á það, að þetta mál verði undirbúið og lögin endurskoðuð fyrir næsta þing, hæstv. ríkisstjórn hafi um það forgöngu, svo að sjónarmið allra, sem eru nákunnugir, hafa reynsluna og hafa hagsmunanna að gæta, geti komið sínum sjónarmiðum þarna að, enda hef ég bent á, að jafnvel meðal saltendanna er ekki ánægja með þetta frv., þar sem það á sér stað, að félag síldarsaltenda í stærsta síldarútvegsbæ landsins lýsir andstöðu sinni við þetta frv. Þess vegna held ég, að það sé fyrir alla aðila skynsamlegra að samþykkja þá dagskrá, sem við flytjum.