07.12.1960
Sameinað þing: 21. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 128 í B-deild Alþingistíðinda. (186)

1. mál, fjárlög 1961

Forseti (FS):

Samkvæmt þingsköpum eiga almennar umræður um fjárlagafrv., eldhúsumræður svokallaðar, að fara fram við 1, umr. En samkomulag hefur orðið um það milli formanna þingflokkanna, nú eins og undanfarin ár; að þessum almennu umræðum, eldhúsumræðum verði frestað þar til síðar á þinginu, og verða þær þá ekki í beinu sambandi við afgreiðslu fjárlaga. En til þess að svo megi verða, þarf heimild til afbrigða frá þingsköpum, og verður þeirra nú leitað.