18.10.1960
Neðri deild: 6. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 173 í C-deild Alþingistíðinda. (1872)
7. mál, löggilding bifreiðaverkstæða
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Ég hef auðvitað síður en svo nokkuð á móti því, að þetta sé athugað. En ég vil einungis benda á, að bifreiðaeftirlitið er auðvitað ekki sízt til að hafa eftirlit með störfum bifreiðaverkstæðanna. Þess vegna er auðvitað hæpið, að skoðunarvottorð frá bifreiðaverkstæðum geti verið tekin fullgild nema með einhverri endurskoðun a.m.k. af hálfu bifreiðaeftirlitsins, vegna þess að annars mundi aðili sjálfur dæma um sín eigin verk. Þetta er nauðsynlegt að hafa í huga. En það má segja, að eftir því sem bifreiðaverkstæðin verða öruggari í störfum og meiri trygging fyrir því, að þau séu verki sínu vaxin, eftir því er frekar óhætt að treysta þeim. Það er alveg rétt. En hér er þó ekki um alveg einfalt mál að ræða, en sjálfsagt, að hv. nefnd íhugi þetta.