28.10.1960
Neðri deild: 12. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 270 í C-deild Alþingistíðinda. (1938)

50. mál, bann gegn vinnustöðvun íslenskra atvinnuflugmanna

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Það hafa engin af þeim rökum, sem borin hafa verið fram til stuðnings þessu frv., verið hrakin, en auk þeirra vil ég benda á lokaorð grg.frá mþn. Alþýðusambands Íslands í laga- og skipulagsmálum, þar sem segir m.a.: „Grundvallarsjónarmið verkalýðssamtakanna hlýtur að vera það að láta hagsmuni heildarinnar sitja í fyrirrúmi fyrir hagsmunum einstakra starfshópa.“ Í samræmi við þessa stefnuyfirlýsingu A.S.Í. segi ég já.