31.01.1961
Efri deild: 50. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 893 í C-deild Alþingistíðinda. (2328)

168. mál, kirkjugarðar

Frsm. (Auður Auðuns):

Herra forseti. Frv. þetta er flutt af menntmn. þessarar hv. þd. að beiðni kirkjumrh. Þetta frv. var samþ. á kirkjuþingi 1960 með ósk um, að það yrði lagt fyrir yfirstandandi Alþ.

Fyrir Alþingi, er sat 1958–59, var lagt frv. um kirkjugarða. Frv. þetta er í meginatriðum samhljóða því. Nokkrar breyt. hafa þó á orðið síðan.

Eins og fram kemur í aths., eru nm. í menntmn. óbundnir um afstöðu til þessa frv. Það er ekki till. um, að því verði vísað til n., þar sem frv. er flutt af nefnd. N. mun að sjálfsögðu hafa það til athugunar, eftir því sem tilefni gefst til, milli umr. — Ég legg svo til, að frv. verði vísað til 2. umr.