27.03.1961
Sameinað þing: 56. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 540 í D-deild Alþingistíðinda. (2561)
57. mál, slys við akstur dráttarvéla
Matthías Á. Mathiesen:
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hv. allshn. fyrir þá afgreiðslu, sem hún hefur veitt þessari till., því að hér er um mjög viðkvæmt mál að ræða. Frá því að þessi till. kom fram hér á Alþ., höfum við því miður orðið þess varir enn á ný, að akstur þessara dráttarvéla er mjög svo hættulegur og það er fyllsta ástæða til þess, að gerðar séu allar þær varúðarráðstafanir, sem til eru.