27.03.1961
Sameinað þing: 56. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 558 í D-deild Alþingistíðinda. (2628)

195. mál, hagnýting skelfisks

Frsm. (Jónas G. Rafnar):

Herra forseti. Eins og nál. á þskj. 585 ber með sér, hefur fjvn. orðið sammála um að mæla með samþykkt till. Nefndin leitaði umsagnar bæði Fiskifélags Íslands og fiskideildar atvinnudeildar háskólans. Báðar þessar stofnanir mæla eindregið með því, að till. verði samþ. Ég sé ekki ástæðu til þess að hafa um þetta fleiri orð, þar sem málinu eru gerð góð skil í grg. og það var einnig gert í framsögu fyrir till.