19.12.1960
Neðri deild: 42. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 426 í B-deild Alþingistíðinda. (292)

130. mál, söluskattur

Frsm. meiri hl. (Birgir Kjaran):

Herra forseti. Fjhn. hv. d. hefur haft þetta mál til meðferðar, þ.e. frv. til laga um breyt. á l. nr. 10 22. marz 1960, um söluskatt. N. hefur klofnað um málið, og munu minni hlutar skila sérstökum álitum, en ég mæli hér fyrir munn meiri hl.

Þetta mál hefur svo ýtarlega verið rætt við 1. umr., að ekki þykir ástæða til þess að rekja efni þess hér frekar, og mælir meiri hl. með, að frv. verði samþ. óbreytt.