02.11.1960
Sameinað þing: 9. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1129 í D-deild Alþingistíðinda. (3077)
76. mál, veðdeild Búnaðarbankans
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Það er aðeins í sambandi við þá viðbótartillögu, sem hv. fyrirspyrjandi minntist á. Það var hv. 1. þm. Norðurl. v., sem flutti hana, og ég man, að þegar hann talaði fyrir þeirri till., lagði hann áherzlu á, að veðdeildinni væri tryggð einhver upphæð á þessu ári, allt væri betra en ekkert og þótt hún væri ekki nema lítil, og mig minnir, að hv. 1. þm. Norðurl. v. talaði um, að 2 millj, væru þó betra en ekkert. Þetta minnir mig. Og það er rétt, það er allt betra en ekkert, og 3 millj. eru nú tryggðar til veðdeildarinnar, sem verða greiddar bráðlega, og það er þá líka betra en ekkert. Af því leiðir, að enda þótt viðbótartill. hefði verið samþykkt, væri veðdeildin í dag ekkert betur sett. En ég veit, að hv. þm. skilja erfiðleikana á því að afla fjár, stórrar upphæðar, á ekki lengri tíma en þetta, og að það hlýtur að taka ríkisstj. nokkurn tíma að finna þá lausn á þessu máli, sem við öll æskjum, þar sem þessi sjóður hefur búið við fjárskort alltaf undanfarið. Það er ekki af viljaleysi þeirra, sem hafa ráðið. Það er vegna þess, að það hefur bara vantað möguleikana til þess. Og nú þessa mánuði, sem liðnir eru, síðan þáltill. var samþykkt, hefur ekki orðið sú breyt. á, að það séu ekki enn erfiðleikar á þessu sviði. Það veit ég að öllum er ljóst. En ég endurtek það, að þetta mál er í athugun og það er vilji fyrir hendi til þess að leysa það.