30.11.1960
Sameinað þing: 20. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1141 í D-deild Alþingistíðinda. (3104)

901. mál, rannsóknarmál ríkisins

Fyrirspyrjandi (Pétur Sigurðsson):

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. félmrh. fyrir skýr og greinagóð svör. Ég vil jafnframt leyfa mér að fagna þeirri niðurstöðu, sem þessi n. hefur komizt að, sem hefur haft þetta mál til meðferðar. Ég eins og hæstv. félmrh. tók fram, þá eru þessar niðurstöður það nýtilkomnar, að þeir menn, sem þarna hafa hagsmuna að gæta, munu að sjálfsögðu endurskoða afstöðu sína til fyrri óska í samræmi við þessar niðurstöður.