25.01.1961
Sameinað þing: 34. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1154 í D-deild Alþingistíðinda. (3132)

955. mál, ráðstöfun 6 miljón dollara lánsins frá Bandaríkjunum

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Þetta lán mun nema samtals í íslenzkum krónum um 200 millj. Ríkisstj. hefur ákveðið ráðstöfun á jafnvirði 102 millj. kr. umfram þær 98 millj., sem ráðstafað var samkv. 22. gr. fjárlaga fyrir 1959. Þetta fé mun verða lánað eftirgreindum aðilum: 1) Raforkusjóði 52 millj 2) Fiskveiðasjóði Íslands 40 millj. 3) Sementsverksmiðju ríkisins 10 millj. kr. Samtals 102 millj. kr.