22.02.1961
Sameinað þing: 41. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1158 í D-deild Alþingistíðinda. (3143)
956. mál, niðurgreiðslur á vöruverði
Fyrirspyrjandi (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Á þskj. 368 flyt ég ásamt hv. 1. þm. Vestf. (AB) fsp. til hæstv. ríkisstj. um niðurgreiðslu á vöruverði. Fyrirspurnin hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„1) Hvaða vörutegundir voru greiddar niður, og hve miklu nam niðurgreiðslan á hverri vörutegund á s.l. ári miðað við kg eða lítra?
2) Hvað er áætlað, að niðurgreiðsla á hverri vörutegund nemi miklu samtals á yfirstandandi árí?.
Á fjárlögum yfirstandandi árs og fjárlögum 1960 eru áætlaðar 302.9 millj. kr. til niðurgreiðslna. Þar sem hér er um verulega háa fjárhæð að ræða. ber nauðsyn til, að hv. Alþ. fái þær upplýsingar, hvernig þetta skiptist á hinar einstöku vörutegundir eða hvort niðurgreiðslan á s.l. ári hefur numið þeirri upphæð, sem gert var ráð fyrir. Á a.m.k. tveim síðustu þingum hefur verið um það spurt hér á hv. Alþ., hvernig þessar niðurgreiðslur hafi skipzt á einstakar vörutegundir, og hefur hæstv. viðskmrh. orðið fyrir svörum af hálfu hæstv. ríkisstj. og gefið um það greinagóð svör. Ég vonast því til að fá um þessa fsp. einnig góð svör af hendi hæstv. ríkisstjórnar.