02.03.1961
Efri deild: 68. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 844 í B-deild Alþingistíðinda. (859)

41. mál, Listasafn Íslands

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ég vil aðeins láta í ljós þakklæti mitt til hv. menntmn. fyrir góða og greiða afgreiðslu hennar á þessu frv. og taka það fram, að ríkisstj. getur fyrir sitt leyti fullkomlega stutt allar þær brtt., sem hv. menntmn. hefur flutt við frv.