14.03.1961
Neðri deild: 74. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 868 í B-deild Alþingistíðinda. (919)
179. mál, Landsbanki Íslands
Gísli Jónsson:
Forseti. Ég sé, að hér hefur verið tekin upp ný regla um að halda fundi áfram án þess að gefa fundarhlé. Þingsköp segja ekkert um það að vísu, en þetta er þó alveg ný regla, sem tekin hefur verið hér upp, og ég vildi nú mælast til þess, að ef það er hugsað hjá forseta að hafa þá reglu, þá væri hún birt í dagskránni, svo að þm. vissu, hvers þeir ættu að vænta. Ég tel ekkert eftir mér að sitja hér á fundum og hlusta á umr. manna, en ég vildi þó gjarnan vita, hvort það er hugsað að taka upp þessa reglu að halda áfram sleitulaust fundum og það án þess að láta hv. þm. vita um það.