23.11.1961
Neðri deild: 24. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 124 í B-deild Alþingistíðinda. (109)

42. mál, almannatryggingar

Frsm. (Þorvaldur G. Kristjánsson):

Hæstv. forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, fjallar um hækkun á bótum almannatrygginga. Eins og fram kemur í nál., hefur heilbr.- og félmn. tekið mál þetta til afgreiðslu og mælir með því, að það verði samþykkt óbreytt. Tveir nm. voru fjarstaddir við þessa afgreiðslu nefndarinnar, þeir hv. 4. þm. Reykn. og hv. 4. landsk. þm.