10.10.1961
Sameinað þing: 0. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 15 í B-deild Alþingistíðinda. (12)

Drengskaparheit unnið

Aldursforseti (GíslJ):

Út af ósk hv. 1. þm. Norðurl. v. skal ég skýra frá því, að ég get því miður ekki orðið við hans ósk um að víkja á þeim rökum, sem hann hefur fært hér fram, ekki vegna mín persónulega, heldur vegna þess, að ég tel, að það stríði á móti ákvæðum þingskapa. Það er þess vegna, sem ég hef lesið upp þau orð hér um þetta efni, að ég vil, að Það sé staðfest í alþingisumræðum til eftirbreytni síðar meir. Ef hv. þm. heldur fast við þá till. sína að bera það undir deildina, þá er það að sjálfsögðu velkomið af minni hálfu, og óska ég þá helzt eftir, að það komi skrifleg tillaga um það.