13.10.1961
Neðri deild: 3. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1519 í B-deild Alþingistíðinda. (1267)

16. mál, veiting ríkisborgararéttar

Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):

Hæstv. forseti. Frv. þetta til l. um veitingu ríkisborgararéttar er samið með sama sniði og eftir sömu grundvallarreglum og hliðstæð frv. hafa verið samin á undanförnum árum og í öltum atriðum í samræmi við þær reglur, sem allshn. beggja deilda komu sér saman um 1955 og síðan hefur verið farið eftir við afgreiðslu slíkra mála hér í þinginu. Ég vil leyfa mér að leggja til, að þessu máli verði að umræðu lokinni vísað til hv. allshn.