03.04.1962
Neðri deild: 82. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1520 í B-deild Alþingistíðinda. (1273)

16. mál, veiting ríkisborgararéttar

Einar Ingimundarson:

Hæstv. forseti. í fjarveru frsm. allshn. get ég skýrt frá því, að síðan mál þetta var hér síðast til umr., hafa n. borizt umsóknir frá Þremur aðilum um ísl. ríkisborgararétt, og með því að þeir fullnægja allir þeim skilyrðum, sem n. hefur sett fyrir veitingu ríkisborgararéttar, hefur hún tekið upp í till. sínar á þskj. 582 nöfn þeirra og leggur til, að brtt. á þessu þskj. verði samþ.