10.04.1962
Neðri deild: 88. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1551 í B-deild Alþingistíðinda. (1478)
204. mál, vernd barna og ungmenna
Frsm. (Alfreð Gíslason bæjarstjóri):
Hæstv. forseti. Allshn. hefur athugað frv, þetta. Hér er aðeins um leiðréttingar að ræða á fyrri l., nr. 29 frá 1947. 55. gr. þeirra I. nær aðeins til 44., 46. og 46. gr. laganna, um meðferð á brotum samkv. þeim greinum. Hins vegar er einnig refsiákvæði í 4 öðrum greinum í þessum lögum, en þar sem 55. gr. nær ekki til meðferðar þeirra, þá er hér aðeins um leiðréttingu að ræða, og var n. öll sammála um að mæla með, að frv. yrði samþykkt.