05.04.1962
Efri deild: 79. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 1555 í B-deild Alþingistíðinda. (1501)

212. mál, dánarvottorð

Frsm. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Eins og hæstv. dómsmrh. tók fram, þegar hann fylgdi þessu frv. úr hlaði við 1. umr. málsins, leiðir flutning þess af þeirri breyt., sem gerð var með samþykkt frv. um þjóðskrá og almannaskráningu.

Allshn. hefur haft þetta frv. til meðferðar og leggur einróma til, að það verði samþykkt. Frv. snertir aðeins tæknileg framkvæmdaratriði, og sé ég ekki ástæðu til þess að fjölyrða meira um það.