13.10.1961
Efri deild: 3. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 163 í B-deild Alþingistíðinda. (177)
10. mál, innflutningur á hvalveiðiskipum
Sjútvmrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er borið fram til staðfestingar á brbl., sem út voru gefin 13. júlí s.l., þar sem heimilað var að veita h/f Hval leyfi til innflutnings á tveim hvalveiðiskipum, enda þótt þau bæði hafi verið eldri en 12 ára, þegar leyfið var gefið út.
Eins og kunnugt er, hefur þetta félag, hlutafélagið Hvalur, rekið hér hvalveiði með miklum myndarbrag allmörg undanfarin ár. Það varð fyrir því óláni í sumar, um miðjan júnímánuð s.l. eða rétt í byrjun hvalveiðivertíðarinnar, að eitt af skipum félagsins gereyðilagðist, og þar sem fleiri voru á fallanda fæti, sótti félagið um leyfi til kaupa á tveim nýjum skipum til viðbótar sínum fyrri skipastól. Eftir nokkra eftirgrennslan komst félagið að því, að það mundi geta fengið keypt tvö skip, sem hentuðu mjög vel fyrir þennan rekstur, og ákvað að kaupa þau, ef leyfi fengist til þess, en bæði skipin voru eldri en svo, að hægt væri að flytja þau inn án sérstaks leyfis og þá sennilega, þó að það sé ekki alveg öruggt, án sérstakrar lagasetningar. Annað skipið var 14 ára gamalt og hitt tæplega 16 ára. Þessi skip voru, eins og ég sagði, að því er virtist mjög hentug til þessa veiðiskapar og fengust við mjög góðu verði, að því er talið var. Umsagnar skipaskoðunarstjóra var leitað um þetta, og hann lét skoða annað skipið, en að vísu ekki hitt, en taldi, að þau væru svo lík, að eitt gilti fyrir bæði, ef ekkert sérstakt kæmi í ljós, en kaupandi hafði áður kynnt sér, að það væri ekkert sérstakt athugavert við skipin. Skipaskoðunarstjóri segir svo í lok bréfs um þetta efni til rn., með leyfi hæstv. forseta:
„Þrátt fyrir þetta ákvæði laganna er ég því meðmæltur, að innflutningur þessara tveggja hvalveiðibáta verði leyfður, hvort sem til þess þarf lagaheimild eða ekki, því að hér er um mjög hagkvæm kaup að ræða og þessi tvö skip eru mun nýrri, stærri og því betur hæf til hvalveiða en þau íslenzk skip, sem nú stunda þessar veiðar.“
Ég tel mig ekki þurfa að hafa um þetta fleiri orð, málið virðist liggja svo augljóst fyrir, en vildi aðeins leyfa mér að leggja til, að að þessari umr. lokinni yrði frv. vísað til hv. sjútvn.