11.12.1961
Neðri deild: 35. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 166 í B-deild Alþingistíðinda. (187)

10. mál, innflutningur á hvalveiðiskipum

Frsm. (Matthías Á. Mathiesen):

Hæstv. forseti. Eins og fram kemur í nál. á þskj. 178, mælir sjútvn. einróma með því, að frv. það, sem hér liggur fyrir, verði samþykkt óbreytt. Þarf engum orðum um þetta að fara. Hæstv. sjútvmrh. gerði í ræðu sinni við 1. umr. grein fyrir frv. og n. er því sammála og leggur til, að frv. verði vísað til 3. umr.